Lagt af stað af bílaplani við Ögurnes. Gengið um Ögurnesið og sagt frá byggðinni sem þarna var. Gengið að Hamrinum, þar upp og gengið eftir nokkuð sléttu landi að Ögri, sagt frá byggðinni á leiðinni og endað í Ögurkirkju. Fólki er ekið til baka í bíla sína eða það gengur sjálft.
Áætlaður tími er 2 klst. og gjald 5.500 á mann. Frítt fyrir 15 ára og yngri.
Skilmálar
Við biðjum viðskiptavini okkar að sýna þolinmæði, sveigjanleika og skilning ef leiðsögumaður þarf að breyta áætlun sökum veðurs eða annara ástæðna.
Tímasetningar sem gefnar eru upp við pöntun ferðar eru áætlaðar og má gera ráð fyrir því að þær geti breyst. Miðað er við að viðskiptavinir mæti hálftíma fyrir áætlaða brottför þar sem undirbúningur tekur alltaf einhvern tíma.
Gerð er krafa um að þátttakendur fari eftir fyrirmælum leiðsögumanns í ferðum og sýni samferðafólki sínu tillitssemi. Ef sú regla er brotin þá er leyfilegt að hamla viðkomandi þátttöku eða vísa honum úr ferðinni án endurgreiðslu.
Með því að bóka ferð á vefsíðu Ögur Travel þá samþykkir þú skilmála þessa.
Þú getur sótt skjal með öllum skilmálum með því að smella
hérna.