Varða á Hömlum, ganga

Lagt af stað frá bílaplani við Ögurnes og gengið upp á Ögurháls og þaðan upp á fjall ofan hálsins.

 

Gengið er framhjá þremur vörðum, sú síðasta s.k. Gvendaraltari, kennd við Guðmund góða sem vígði staði um allt land. Til siðs er að henda þremur steinum að altarinu. Gott útsýni er frá þessum stað út Ísafjarðardjúp.

 

Uppi á fjalli er varða sem er hluti eyktarmarka Ögurvíkurinnar og sýnir hún hvenær kl. er 18:00. Í vörðunni er gestabók sem göngugarpar geta ritað nafn sitt í. Gengið er frá vörðunni og endað í Ögri.

 

Fólki er ekið til baka í bíla sína eða það gengur sjálft.

 

Áætlaður tími er 3 klst. og gjald 7.500 á mann. Frítt fyrir 15 ára og yngri.

Skilmálar
Við biðjum viðskiptavini okkar að sýna þolinmæði, sveigjanleika og skilning ef leiðsögumaður þarf að breyta áætlun sökum veðurs eða annara ástæðna.

Tímasetningar sem gefnar eru upp við pöntun ferðar eru áætlaðar og má gera ráð fyrir því að þær geti breyst. Miðað er við að viðskiptavinir mæti hálftíma fyrir áætlaða brottför þar sem undirbúningur tekur alltaf einhvern tíma.

Gerð er krafa um að þátttakendur fari eftir fyrirmælum leiðsögumanns í ferðum og sýni samferðafólki sínu tillitssemi. Ef sú regla er brotin þá er leyfilegt að hamla viðkomandi þátttöku eða vísa honum úr ferðinni án endurgreiðslu.

Með því að bóka ferð á vefsíðu Ögur Travel þá samþykkir þú skilmála þessa.

Þú getur sótt skjal með öllum skilmálum með því að smella hérna.



Ögur ehf. • Ögri Ísafjarðardjúpi • Netfang: ogur@ogurtravel.com • Sími: 857-1840

VEFSMÍÐI: STYX EHF. KNÚIÐ AF: WebSmith