Geldingaskarð, ganga

Sjómenn kalla skarðið oft Ögurskarð og var það a.m.k. fyrir tíma nákvæmra staðsetningartækja notað sem mið við veiðiskap í utanverðu Ísafjarðardjúpi.

 

Um er að ræða skarð í Skarðsfjalli en það rís upp af Skarðsströnd sem liggur meðfram Vigurál.

 

Lagt er af stað frá Ögri og gengið upp á Ögurháls framhjá Gvendaraltari og inn Langahjalla undir hinu snarbratta Skarðsfjalli. Undir Geldingaskarði eru farnar skriður upp í skarðið og það síðan fetað upp á fjallið í stórkostlegu útsýni. Úr skarðinu er farið yfir á Ögurdal og endað aftur í Ögri.

 

Ekki er mælt með ferðinni fyrir lofthrædda.

 

Áætlaður tími er 6 klst. og gjald 15.000 á mann. Frítt fyrir 15 ára og yngri.

Skilmálar
Við biðjum viðskiptavini okkar að sýna þolinmæði, sveigjanleika og skilning ef leiðsögumaður þarf að breyta áætlun sökum veðurs eða annara ástæðna.

Tímasetningar sem gefnar eru upp við pöntun ferðar eru áætlaðar og má gera ráð fyrir því að þær geti breyst. Miðað er við að viðskiptavinir mæti hálftíma fyrir áætlaða brottför þar sem undirbúningur tekur alltaf einhvern tíma.

Gerð er krafa um að þátttakendur fari eftir fyrirmælum leiðsögumanns í ferðum og sýni samferðafólki sínu tillitssemi. Ef sú regla er brotin þá er leyfilegt að hamla viðkomandi þátttöku eða vísa honum úr ferðinni án endurgreiðslu.

Með því að bóka ferð á vefsíðu Ögur Travel þá samþykkir þú skilmála þessa.

Þú getur sótt skjal með öllum skilmálum með því að smella hérna.



Ögur ehf. • Ögri Ísafjarðardjúpi • Netfang: ogur@ogurtravel.com • Sími: 857-1840

VEFSMÍÐI: STYX EHF. KNÚIÐ AF: WebSmith