Frá vörinni í Ögri, róið meðfram fjörunni út í Ögurnes en þaðan er róið beint að norðurenda Vigur yfir Vigurál. Stundum sjást hvalir á þessari leið.
Róið er meðfram eyjunni vestanvert í fuglageri, aðallega lunda sem flýgur í þúsundatali út á sjó og til baka. Það er stórkostleg upplifun að róa þessa leið í góðu veðri.
Möguleiki á að fara í land og þiggja veitingar. Bætast þá 1.500 kr. við vegna veitinga og sá tími sem stoppað er í eyjunni bætist við ferðatímann.
Áætlaður tími er 4-7 klst. og gjald 24.500 á mann.
Skilmálar
Við biðjum viðskiptavini okkar að sýna þolinmæði, sveigjanleika og skilning ef leiðsögumaður þarf að breyta áætlun sökum veðurs eða annara ástæðna.
Tímasetningar sem gefnar eru upp við pöntun ferðar eru áætlaðar og má gera ráð fyrir því að þær geti breyst. Miðað er við að viðskiptavinir mæti hálftíma fyrir áætlaða brottför þar sem undirbúningur tekur alltaf einhvern tíma.
Gerð er krafa um að þátttakendur fari eftir fyrirmælum leiðsögumanns í ferðum og sýni samferðafólki sínu tillitssemi. Ef sú regla er brotin þá er leyfilegt að hamla viðkomandi þátttöku eða vísa honum úr ferðinni án endurgreiðslu.
Með því að bóka ferð á vefsíðu Ögur Travel þá samþykkir þú skilmála þessa.
Þú getur sótt skjal með öllum skilmálum með því að smella
hérna.