Ævintýraferð um Djúpið - helgarferð

Boðið er upp á langar kajakferðir um Ísafjarðardjúp, yfir á Snæfjallaströnd, meðfram eyjunni Æðey, inn í Kaldalón þar sem Drangajökull sést vel fyrir botni lónsins. Við tjöldum einhvers staðar þar sem hentar best yfir eina nótt.

 

Áfram róum við inn Djúp, komum við í Borgarey og endum í Reykjanesi í heitri sundlauginni.

 

Þessar ferðir eru farnar á laugardegi og sunnudegi.

 

Bóka verður sig með fyrirvara og lágmarksfjöldi er 4 manns.

 

Verð er 80.000 kr., matur í ferðinni og sund í Reykjanesi er innifalið.
 

Skilmálar
Við biðjum viðskiptavini okkar að sýna þolinmæði, sveigjanleika og skilning ef leiðsögumaður þarf að breyta áætlun sökum veðurs eða annara ástæðna.

Tímasetningar sem gefnar eru upp við pöntun ferðar eru áætlaðar og má gera ráð fyrir því að þær geti breyst. Miðað er við að viðskiptavinir mæti hálftíma fyrir áætlaða brottför þar sem undirbúningur tekur alltaf einhvern tíma.

Gerð er krafa um að þátttakendur fari eftir fyrirmælum leiðsögumanns í ferðum og sýni samferðafólki sínu tillitssemi. Ef sú regla er brotin þá er leyfilegt að hamla viðkomandi þátttöku eða vísa honum úr ferðinni án endurgreiðslu.

Með því að bóka ferð á vefsíðu Ögur Travel þá samþykkir þú skilmála þessa.

Þú getur sótt skjal með öllum skilmálum með því að smella hérna.



Ögur ehf. • Ögri Ísafjarðardjúpi • Netfang: ogur@ogurtravel.com • Sími: 857-1840

VEFSMÍÐI: STYX EHF. KNÚIÐ AF: WebSmith