Þú ákveður ferð og lengd

Gert er ráð fyrir að í „overnight“ ferðunum ákveði fólk hvort það vill vera eina nótt og tvo daga eða tvær nætur og þrjá daga. Boðið er upp á þessar ferðir til að koma til móts við þá sem finnst 5 daga ferð of löng og dagsferðirnar of stuttur tími. Svo má líka lengja ferðir allt upp í 11 daga ef þess er óskað. Safnað er í þessar ferðir og farið í samræmi við óskir um dagsetningar.

 

Kostnaður er 40.000 kr. á dag/sólarhring pr. mann.

 

Skilmálar
Við biðjum viðskiptavini okkar að sýna þolinmæði, sveigjanleika og skilning ef leiðsögumaður þarf að breyta áætlun sökum veðurs eða annara ástæðna.

Tímasetningar sem gefnar eru upp við pöntun ferðar eru áætlaðar og má gera ráð fyrir því að þær geti breyst. Miðað er við að viðskiptavinir mæti hálftíma fyrir áætlaða brottför þar sem undirbúningur tekur alltaf einhvern tíma.

Gerð er krafa um að þátttakendur fari eftir fyrirmælum leiðsögumanns í ferðum og sýni samferðafólki sínu tillitssemi. Ef sú regla er brotin þá er leyfilegt að hamla viðkomandi þátttöku eða vísa honum úr ferðinni án endurgreiðslu.

Með því að bóka ferð á vefsíðu Ögur Travel þá samþykkir þú skilmála þessa.

Þú getur sótt skjal með öllum skilmálum með því að smella hérna.



Ögur ehf. • Ögri Ísafjarðardjúpi • Netfang: ogur@ogurtravel.com • Sími: 857-1840

VEFSMÍÐI: STYX EHF. KNÚIÐ AF: WebSmith