Kajak og krásir (gourmet kayaking) er ferð sem á að gleðja öll skynfæri. Náttúruupplifun og veislumatur. Í þessum ferðum er farið um Ísafjarðardjúp með viðkomu í eyjum Djúpsins og hinum ýmsu náttúruperlum. Það fer eftir lengd ferðar hversu víða er komið við. Gist er í tjöldum eða á eyðibýli, allt eftir því hvernig ferðirnar þróast.
Lengd: 1-5 dagar að vali þeirra sem panta.
Verð: 90.000 kr. sólarhringurinn
Lágmarksfjöldi: 4
Hvenær farið árið 2018: Eftir pöntunum.
Skilmálar
Við biðjum viðskiptavini okkar að sýna þolinmæði, sveigjanleika og skilning ef leiðsögumaður þarf að breyta áætlun sökum veðurs eða annara ástæðna.
Tímasetningar sem gefnar eru upp við pöntun ferðar eru áætlaðar og má gera ráð fyrir því að þær geti breyst. Miðað er við að viðskiptavinir mæti hálftíma fyrir áætlaða brottför þar sem undirbúningur tekur alltaf einhvern tíma.
Gerð er krafa um að þátttakendur fari eftir fyrirmælum leiðsögumanns í ferðum og sýni samferðafólki sínu tillitssemi. Ef sú regla er brotin þá er leyfilegt að hamla viðkomandi þátttöku eða vísa honum úr ferðinni án endurgreiðslu.
Með því að bóka ferð á vefsíðu Ögur Travel þá samþykkir þú skilmála þessa.
Þú getur sótt skjal með öllum skilmálum með því að smella
hérna.